Sigríður Kristín Óladóttir

30.5.05

Til hamingju með daginn elsku Þóra !

Hún á afmæli í dag,
hún á afmæli í dag.
Hún á afmæli hún Þóra
hún á afmæli í dag.

Til hamingju með 25 ára afmælið elsku Þóra mín.

22.5.05

Myndin komin

Þetta er ferlega sniðugt, ég downloadaði Hello sem Helga notar til að koma myndunum út á Netið og bingó þetta gekk bara vel. En þetta er myndin sem Valli bróðir tók af okkur í afmælinu á Miðgarði.

Annars er allt gott að frétta, Þórður skilaði íbúðinni á föstudaginn og er fluttur hingað á Jörundarholt 15. Við buðum mömmu í bíltúr uppí Borgarnes í gær og gullkornið frá henni á leiðinni var um Ingva Hrafn. Hún sagði: Hann er bókstaflega alveg eins og steinbítur!! Steinbítur hefur aldrei verið talin til fagurfiska, enda kom svo hjá henni: Hann er svo ljótur að mér finnst að hann eigi alltaf að vera með sólgleraugu, þetta átti við Ingva en ekki steinbítinn.

Ég veit ekki hvað þetta er með mömmu og fiskana. Á sunnudaginn þegar hún kom í mat sagði hún við Þórð: Þú ert alveg eins og karfi í framan. Hann var að vísu vel rauður eftir sólbað þann dag. Hann svaraði bara sallarólegur: Það er fínt, maður á eftir að vera svona í 2-3 daga í viðbót og svo verð ég brúnn og sætur (eins og hann sé ekki alltaf sætur!)

þetta er gott í bili, ég ætla að skella mér smástund í pottinn og svo verð ég að fara niður í skóla að vinna.


Þórður og ég í 450 ára afmælinu Posted by Hello

18.5.05

Ganga á Akrafjall

Í dag ætlum við kennarar og starfsfólk í Brekkubæjarskóla að ganga á Akrafjall, það er líka frábært veður þótt ekki sé hlýtt. Það verður gaman að sjá hve margir mæta í gönguna.

En það hefur aldeilis verið nóg að gera að hjá okkur og mér að undanförnu. Seinasta föstudag var ég í forffallakennslu, var að kenna 2.bekk fyrir Stellu sem var á námskeiði. Þegar ég mætti á kennarastofuna um morguninn var ég strax spurð hvað væri í gangi með mig (frú Sigríði) og Jóa Fel? Í Séð og heyrt var víst talað um að frú Sigríður færi í sturtu með Jóa Fel, úhúú!!!. Þetta er reyndar Frú Sigríður (Siggi Sig) í Hagkaups-auglýsingunum, það er bara gaman af þessu.

Ég gleymdi að segja ykkur að það var alveg meiriháttar gaman í afmlinu hjá Dóru mágkonu og saumaklúbbsstelpunum hennar og ég má til með að setja myndina af okkur Þórði sem Valli sendi mér hér á bloggið.

Á laugardaginn skruppum við Þórður til Reykjavíkur með mömmu hún var að eyða sígarrettupeningunum eins og hún orðaði það á svo skemmtilegan hátt. Hún á meira að segja eftir 100 þúsund til að eyða. En hún keypti sér mjög fínt rokkokkósófasett og nýtt sófaborð. Ég er sammála Þóru um að hún mamma getur verið algjör dúlla. Á leiðinni sagði hún að henni finnst svo skrítið að einhver nýr vistmaður á Höfða skuli ekki fá sér falskar tennur, hann er svo lengi að tyggja að það er alveg með ólíkindum. Hún sagði að falskar tennur væru ekki svo dýrar. Ég sagði þá :það er annað en mínar, þá sagði hún: það eru ekki allir með svona gullkjaft eins og þú, svo mörg voru þau orð.
Hún sagði okkur líka að það væri gaman að Óli Hlöðvers skyldi muna eftir afmælinu hennar Helgu. Svo sagði hún okkur söguna um Hlöbba og það að hann man aldrei hvort það var hrútlambið sem fæddist 4. apríl eða afmælisdagur mömmu, sem er að vísu 5. apríl. Hún vildi sem sagt meina að lambið væri stalli ofar en hún, hún hefur lúmskt gaman af þessu.

Við kláruðum eiginlega að þrífa íbúðina hans Þórðar þegar við komur úr Reykjavík og elduðum svo góðan mat þegar því var lokið. Eftir matinn gáfu strákarnir sem ég bý með mér nýjan GSM síma í sumargjöf, ferlega sætir, takk strákar.

Óli og Þóra komu á sunnudaginn og við ásamt Nonna skelltum okkur á ballið með Pöpunum, svaka stuð og mikið gaman.

Um næstu helgi var fyrirhugað að við, 40 ára fermingarsyskin úr gamla barnaskólabekknum okkar hittumst, en því miður vorum við nefndarskvísur Hrönn, Eygló og ég að taka þá ákvörðun að hætta við endufundahittinginn vegna þess að nokkrir eru búnir að tilkynna forföll.

Maður á ekki að skrifa svona mikið í einu, því þá nennir enginn að lesa þetta ekki satt?

10.5.05

Helga 31 árs í dag.

Til hamingju með afmælið elsku Helga mín, manni finnst ótrúlegt að 31 ár sé liðið frá þessum gleðidegi. Þegar ég lít núna á klukkuna sé ég að klukkan á tölvunni er 7 mínútur yfir átta og það var einmitt klukkan 20,07 sem þú komst í heiminn. Þetta var búið að vera erfiður dagur og ég var svo svöng að Ingibjörg á Skarði (sem var viðstödd fæðinguna)fór og sótti fyrir mig brauð með saltaðri rúllupylsu, ég held að þetta hafi verið besta brauð sem ég hef nokkurn tímann smakkað, svei mér þá.

Annars er allt gott að frétta héðan, það er alltaf nóg að gera sem betur fer. Helgarnar eru þétt pakkaðar hjá okkur Þórði í alls konar gleði, ef það er ekki afmæli þá er það eitthvað annað. Við vorum í áttræðisafmæli og 350 ára afmæli 30 apríl og um síðustu helgi fór ég að hitta skólasysturnar svo var afmælisboð hjá systur Þórðar á sunnudaginn, hún var 35 ára þann 8. mai. Þórður er svo gott sem búinn að tæma íbúðina sína, það er lítið eftir nema svolítið í bílskúrnum.

Næsta helgi fer í að klára rest á Stekkjarholti 15, kanski kíkir maður á Papana á sunnudeginum, það er aldrei að vita. Helgina á eftir ætlum við hluti af gamla barnaskólabekknum mínum og mökum að fara austur að Eyrarbakka og fagna 40 ára fermingaræfmæli, hugsa sér, og ég sem er enn svo ung!!!

Ég verð að fara að taka mig á í blogginu, en núna ætla ég niður í skóla og klára að undirbúa morgundaginn.