Sigríður Kristín Óladóttir

29.6.07

Ævintýraleg sigling heim

Það má segja að siglingin heim hafi verið ævintýri líkust. Að fara í stærstu tækin í Tívolíi er ekkert miðað við þessa siglingu. Maður er þó festur niður í tækjunum, en um borð í skipinu þurftum við að ríghalda okkur til þess að fara ekki á fleygiferð!!!! Við sátum fremst á 6. dekki í skipinu sem er 121 m langt og 25 metra breitt. Skipið tekur 1500 farþega, 262 bíla og í því eru 340 svefnklefar. Ég sat við glugga en þannig að ég sá líka út um framrúðuna. Við byrjuðum á því að fá okkur að borða þegar við komum um borð, þetta líka fína hlaðborð. Okkur var sagt að flýta okkur svolítið að borða af því að allur maturinn yrði tekinn þegar við komum út úr höfninni. Við drifum í þessu og borðuðum okkur vel södd. Við áttum að leggja af stað kl. 17:15, en við lögðum ekki af stað fyrr en klukkan 18:30. Ég held að seinkunin hafi að hluta til verið vegna þess að starfsmenn ferjunnar voru að festa bílana og festa allt betur sem hægt er að festa.
Um leið og við vorum komin út úr höfninni byrjaði þessi líka mikli veltingur, við höfum aldrei upplifað annað eins. Skipið valt ekki bara upp og niður heldur líka til hliðar, skiljið þið hvað ég meina? Fólk byrjaði strax að æla í kringum okkur, sem betur fer sá ég bara eina konu æla en heyrði í öllum hinum. Þórður sá aftur á móti miklu fleiri æla af því að hann snéri þannig. Ölduhæðin var 20 metrar, ég hef aldrei séð annað eins. Við sigldum inní sumar öldurnar, þetta var bara eins og skipið hefði fengið á sig brot. Ég segði ósatt ef ég héldi því fram að ég hafi ekki verið hrædd, maður var alveg á nálum allan tímann. Siglingin tók tæpa 4 klukkutíma í stað 2,5 og þeir klukkutímar voru svo sannarlega ekki fljótir að líða!!!
Þvílíkur munur á siglingunni til Bornholms sem tók 1 tíma og 15 mín. í spegilsléttum sjó og svo á þessari glæfrasiglingu. Ég er eiginlega mest hissa á því að þeir skyldu hafa lagt af stað í þessum öldugangi. Ég veit ekki hvað brotnaði mikið af leirtaui hjá þeim um borð, en það var pottþétt einhverjir tugir diska og glasa sem fóru í mask.
En mikið vorum við fegnin að komast í land eftir þessa löngu sjóferð.

Núna ætlum við að skipta hjálminum fyrir Óla og svo förum við að kaupa inn og undirbúa kvöldmatinn af því að Gunnþórunn og Halldór sem við vorum með frá því um hádegi í gær og fram á kvöld ætla að koma í mat til okkar í dag.

Ég segi ykkur seinna frá því hvernig gekk með miðana okkar ha ha ha!!

1 Comments:

  • Ja hérna, það er ekkert smá sjóferð hjá ykkur. Vonandi voru engin eftirköst. Það versta er að finna lyktina og heyra fólkið æla, fær mann stundum nánast til að æla líka. En þið hafið greinilega sloppið við það.

    Góða skemmtun með Boggu og Lofti og Möggu, nú fer aldeilis að styttast í ykkur.

    kv.
    Helga

    By Anonymous Nafnlaus, at 3/7/07 14:19  

Skrifa ummæli

<< Home