Sigríður Kristín Óladóttir

10.5.06

Afmælisdagur Helgu

Hún á afmæli í dag,
hún á afmæli í dag.
Hún á afmæli hún Helga,
hún á afmæli í dag.

Hjartanlegar hamingjuóskir í tilefni dagsins Helga mín.

Eins og þið sjáið, þ.e.a.s. þeir sem enn nenna að kíkja á bloggið mitt, þá er ég hætt að blogga. Bæði það að ég hef verið að drukkna í vinnu og námi og hin ástæðan er sú að ég fékk tilmæli um að fjarlægja "comment" af blogginu mínu sem eitthvert barna minna hafði sett inn fyrir nálægt 2 árum. Þessi comment eru reyndar löngu farin út,en svona er þetta. Fólk er oft viðkvæmt, það sannast ef til vill hér að sannleikanum er hver sárreiðastur.Það mætti halda að ekki væri málfrelsi í landinu. Hafið þið skoðun á þessu?

2 Comments:

  • Takk fyrir þetta mamma mín, en vá hvað ég er hneyksluð á því að einhver hafi verið að abbast útaf commenti. Mér finnst þetta mjög hallærislegt. Okei að vera ósammála einhverju sem er sagt í kommenti en að biðja um að fjarlægja, hvað var sagt sem var svona viðkvæmt og hvert okkar barnanna var þetta. Nú verður þú að tjá þig. Helst þú sem vildir að þetta yrði fjarlægt!!!

    Annað er aumingjaskapur að mínu mati!

    Kraftakveðjur frá Coesfeld
    Helga og bumbubúinn

    By Blogger Helga, at 10/5/06 19:26  

  • Sveitapakk... það jafnast ekkert á við sveitapakk...

    By Blogger Rokkarinn, at 21/5/06 22:35  

Skrifa ummæli

<< Home